Fyrirtækjasvið MSS

Fræðsla og þjálfun fyrir fyrirtæki

Sérsniðið að þínum þörfum - Við bjóðum upp á námskeið og ráðgjöf fyrir fyrirtæki og einstaklinga þar sem þarfir hvers og eins eru hafðar að leiðarljósi.

Þjónusta

Þjónusta

Við bjóðum upp á námskeið og ráðgjöf fyrir fyrirtæki og einstaklinga þar sem þarfir hvers og eins eru hafðar að leiðarljósi. Hér eru gefin dæmi um hvernig við getum þjónustað fyrirtæki og stofnanir en svo erum við alltaf tilbúin að setjast niður og skoða hvað það er sem viðskiptavinurinn leitar að.

Meðal þess sem við getum boðið upp á er fræðslustjóri að láni inn á vinnustaðinn, þarfagreiningu, stutta hnitmiðaða fyrirlestra í hádeginu, styttri eða lengri námskeið, stefnumótun og hópefli meðal starfsfólksins.

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum býður uppá fjölbreytta þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir þar sem haft er að leiðarljósi að aðlaga þjónustuna að þörfum hvers fyrirtækis.

Ummæli viðskiptavina

Við hjá Skólamat ehf. höfum lengi unnið í nánu samstarfi við sérfæðinga MSS að fræðslumálum innan fyrirtækisins eða allt frá árinu 2007. Fræðslumálin hafa þróast mikið og segja má að það sé orðinn fastur liður í menningu fyrirtækisins að hefja haustönn á námsviku þar sem starfsfólk kemur saman og fær þá fræðslu og kennslu sem er þeim nauðsynleg í starfi. Auk þess er lögð áhersla á vellíðan í starfi, öryggi og fagmennsku. Fræðslan er sérsniðin að hverjum og einum hóp og unnin út frá nýjustu þekkingu og þörfum hverju sinni. Á COVID tímum stóðum við frammi fyrir miklum áskorunum þar sem samkomubönn og aðrar takmarkanir settu okkur stólinn fyrir dyrnar. Með tækninni og lausnamiðaðri hugsun starfsfólks MSS leystum við fræðsluvikurnar og þá lausn höfum við ásamt MSS þróað enn frekar öllum til ánægju. Okkar góða samstarf og sú jákvæðni og fagmennska sem ríkir í starfsmannaliði MSS er okkur í Skólamat virkilega mikilvæg.

Fanný Axelsdóttir - framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs Skólamatar

Faglegur stuðningur í mannauðsmálum

Fyrirtækjasvið MSS er traustur samstarfsaðili stjórnenda sem vilja efla starfsfólk sitt með markvissri þjálfun, fræðslu og endurmenntun. Við vinnum náið með þér að því að greina þarfir fyrirtækisins og sníða lausnir sem henta þínum veruleika – hvort sem um ræðir námskeið, starfsdaga, ráðgjöf eða langtíma fræðsluáætlanir. Hjá MSS færðu faglegan stuðning sem sparar tíma, eykur árangur og styrkir mannauðinn á sjálfbæran hátt.

Ekki hika við að hafa samband og taka spjallið við okkur og skoða hvaða möguleikar eru í boði. Nánari upplýsingar veit:


Hólmfríður Karlsdóttir
421-7500 / 412-5962
holmfridur@mss.is

Nanna Bára Maríasdóttir
421-7500 / 412-5959
nannabara@mss.is

Meðal viðskiptavina

Igs Airport AssociatesSkólamaturAllt hreintGrindavíkÞorbjörnVísirNorthern Light InnIsavia