Nám og námskeið á Suðurnesjum

Nám og námskeið hjá MSS

Fjölbreytt námsframboð fyrir einstaklinga sem vilja efla færni, bæta stöðu sína eða stefna á ný tækifæri í námi og starfi.

MSS býður upp á fjölbreytt námsframboð sem miðar að því að styrkja stöðu einstaklinga á vinnumarkaði og styðja við áframhaldandi menntun. Í boði er starfs­tengt nám sem eflir hagnýta færni og atvinnuhæfni, ásamt bóklegu námi sem veitir traustan undirbúning fyrir frekara nám. Auk þess býður MSS upp á fjölbreytt styttri námskeið og fyrirlestra sem miða að því að auka þekkingu, færni og sjálfstraust í námi og starfi.

Öflug íslenskukennsla er í boði fyrir einstaklinga sem hafa íslensku sem annað tungumál. Í boði eru námskeið á stigum eitt til fimm og taka mið af bakgrunni og markmiðum nemenda. Markmið íslenskukennslunnar er að styðja við þátttöku í samfélagi, atvinnulífi og námi.

MSS býður einnig upp á góða námsaðstöðu fyrir háskólanemendur sem stunda fjarnám, þar á meðal aðstöðu til náms, stuðning náms- og starfsráðgjafa og aðstöðu til prófatöku samkvæmt reglum viðkomandi skóla sem nám er stundað við.

Hér að neðan má finna nánari upplýsingar um námsframboð MSS, aðstöðu fyrir fjarnámsnema og reglur um skólagjöld.