Samvinna

Endurhæfing með skýrt markmið

Fyrir einstaklinga sem standa utan vinnumarkaðar og vilja vinna markvisst að endurkomu til vinnu eða náms

Um Samvinnu

Um Samvinnu

Þátttaka í atvinnuendurhæfingu hentar fólki sem:


  • Ekki er á vinnumarkaði vegna veikinda, slysa eða félagslegra erfiðleika en eru að vinna að endurkomu út á vinnumarkaðinn
  • Stendur höllum fæti á vinnumarkaði eða hefur misst vinnu
  • Vill á markvissan hátt vinna að því að breyta stöðu sinni og stefna út á vinnumarkaðinn á ný eða í frekara nám

Hugmyndafræði


Hugmyndafræði Samvinnu gengur út á að vinna að heilstæðri úrlausn með hindranir þátttakenda á einstaklingsmiðaðan hátt. Þátttakandi er sjálfur virkur í sinni endurhæfingu frá upphafi þar sem hann kemur með virkum hætti að gerð sinnar endurhæfingaráætlunar.

Endurhæfingin fer að mestum hluta fram í hóp, t.d. með námskeiðum, fræðslu, hópefli og líkamsþjálfun en einnig á einstaklingsmiðaðan hátt þar sem tekið er mið að þörfum hvers og eins til dæmis með viðtölum eða þjálfun hjá fagaðilum, vinnuprufun eða starfsþjálfun.

Ummæli þátttakenda

,,Ég man hvað ég var hrædd og kvíðin þegar kom að mínum fyrsta degi í Samvinnu. Ég skalf eins og hrísla því ég vissi í raun ekki hvað ég var að fara út í. Frá fyrsta skrefi inn í Samvinnu og fram yfir útskrift úr Samvinnu fann ég ekkert nema einlægni, kærleika, stuðning og hvatningu frá öllu starfsfólki þar og frá þeim sem koma að Samvinnu með einum eða öðrum hætti. Námskeiðin sem eru í boði eru fjölmörg og skemmtileg. Ég get sagt að ég hafi grætt fullt af nýjum verkfærum í bakpokann minn. Að hafa farið í Samvinnu opnaði svo margar dyr bæði námslega og fyrir skóla lífsins. Ég veit að þetta er klisjukennt en er bara satt! Ég veit ekki hvar ég væri ef ekki væri fyrir Samvinnu og allt starfsfólkið sem þar vinnur”
Heiðrún Þóra Aradóttir

Ráðgjafar Samvinnu

Hjá Samvinnu fer fram þverfagleg starfsendurhæfing þar sem markmiðið er að aðstoða fólk við að komast á vinnumarkað eða í nám á ný eftir heilsubrest.

Hver þátttakandi Samvinnu fær ráðgjafa sem er heilbrigðismenntaður og með viðurkennt starfsleyfi frá embætti Landlæknis. Ráðgjafinn og þátttakandinn gera einstaklingsmiðaða áætlun varðandi endurhæfinguna sem tekur mið af markmiðum og þörfum þátttakandans.

Ráðgjafinn styður þátttakandann í gegnum endurhæfingarferlið þar sem boðið er upp á regluleg viðtöl, markmið endurmetin og sett ný. Markmið einstaklinga snúa t.d. að því að bæta daglegar venjur, auka virkni, efla líkamlega og andlega heilsu. Einnig styðja ráðgjafar Samvinnu þátttakendur með ýmsa félagslega þætti s.s. tengt fjármálum, fjölskyldu, búsetu, upplýsingar um félagsleg réttindi, aðstoð við umsóknir og gagnaöflun fyrir hinar ýmsu stofnanir eins og stéttarfélög, lífeyrissjóði, Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og fleira.

Ráðgjafar Samvinnu eru í samstarfi við hina ýmsu sérfræðinga og tengja þátttakendur við þá eftir þeirra þörfum og markmiðum.

Frekari upplýsingar veita:

Aníta Marcher Pálsdóttir

Ráðgjafi hjá Samvinnu

Gunnrún Theodórsdóttir

Ráðgjafi hjá Samvinnu

R. Helga Guðbrandsdóttir

Ráðgjafi hjá Samvinnu / Deildarstjóri

Sunna Hafsteinsdóttir

Ráðgjafi hjá Samvinnu

Þórdís Marteinsdóttir

Ráðgjafi hjá Samvinnu