Hreyfing

Hreyfing gegnir lykilhlutverki fyrir heilsu og vellíðan einstaklinga.

Hreyfing hefur víðtæk áhrif á bæði líkamlega og andlega líðan. Regluleg hreyfing stuðlar að bættri sjálfsmynd, aukinni lífsánægju og betri streitustjórnun.

Hún hefur jákvæð áhrif á öll líffærakerfi líkamans, styrkir hjarta- og æðakerfið og eykur bæði styrk og þol. Jafnframt hefur hreyfing sýnt sig að hafa jákvæð áhrif á andlega heilsu, meðal annars með því að draga úr kvíða og þunglyndi og bæta svefn og almenna líðan.

Samvinna vinnur heildrænt með hindranir þátttakenda og leggur því mikla áherslu á að bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu. Markmiðið er að allir geti fundið hreyfingu við sitt hæfi, óháð getu eða fyrri reynslu, og sinnt henni sem hluta af endurhæfingu sinni á öruggan og uppbyggilegan hátt.

Stökkpallur

Göngur

Göngutímarnir eru hannaðir fyrir alla, óháð getu eða fyrri reynslu, með það að markmiði að auka vellíðan, hreyfigetu og almenna líðan. Gengið er frá húsnæði MSS við Krossmóa 4, og hver ganga varir í 40-60 mínútur, en lengdin og hraðinn eru aðlagaðir að hverjum og einum. Ef veðrið er slæmt, færist gangan inn í Reykjaneshöllina, þar sem tryggt er þægilegt og öruggt umhverfi. Þessir tímar veita frábært tækifæri til að hreyfa sig á sínum eigin forsendum, njóta samveru og bæta bæði líkamlega og andlega líðan.

Þjálfun í tækjasal

Boðið er upp á þjálfun undir handleiðslu íþróttafræðings í Sporthúsinu og Orkustöðinni í Reykjanesbæ. Hreyfingin er einstaklingsmiðuð og geta þátttakendur mætt á öðrum tíma til að fylgja eftir áætlun sem íþróttafræðingur hefur sett upp með viðkomandi einstaklingi.

Einstaklingsmiðuð æfingaáætlun

Þátttakendum stendur til boða að fá einstaklingsmiðaða æfingaáætlun frá sérfræðingum.  

Sund

Þátttakendum stendur til boða að fá sundkort sem veitir þeim aðgang að sundlaugum á Suðurnesjum.

Jóga

Boðið er upp á jóga og slökun þar sem jógakennari kemur og leiðir tímann. Um er að ræða notalega tíma þar sem þátttakendur fá jógadýnur, púða og teppi til afnota í tímum. Þátttakendur geta einnig sótt jógatíma sem eru kenndir utan Samvinnu.

Líkamsræktarstöðvar

Samvinna tekur þátt í að greiða niður líkamsræktarkort fyrir þá einstaklinga sem eru að sinna reglulegri hreyfingu á líkamsræktarstöð.

Fyrirlestrar

Reglulega koma sérfræðingar með fræðslu um mikilvægi hreyfingar, rétta líkamsbeytinu við hreyfingu, verki- og að lifa með verkjum svo eitthvað sé nefnt.