
Kynntu þér námsframboð MSS eða pantaðu tíma í náms- og starfsráðgjöf og skoðaðu þína möguleika
Kynntu þér námsframboð MSS eða pantaðu tíma í náms- og starfsráðgjöf og skoðaðu þína möguleika

20. apríl 2026
Íslenskunámskeið MSS býður upp á íslenskunámskeið fyrir byrjendur sem og lengra komna, því er um einstaklingsmiðað nám að ræða. Markmiðið er að bjóða upp á íslenskunámskeið út frá getu hvers og eins. Á íslenskunámskeiðunum verður áhersla lögð á skilning, talað mál, ritun, hlustun, lestur og málfræði. MSS sendir upplýsingar um námskeið í tölvupósti á nemendur, nokkrum dögum áður en námskeið hefst.Námskeið fer af stað þegar lágmarksþátttaka næst. MSS áskilur sér þann rétt að færa til og breyta dagsetningum og tímasetningum ef þörf er á.Nauðsynlegt er að vera með að lágmarki 80% mætingu til að fá útskriftarskírteini í lok námskeiðs. Ef námskeið er greitt af fyrirtæki/stofnun eða viðkomandi á rétt á styrk vegna námskeiðisgjalda þarf að láta MSS vita við skráningu. Ef þú finnur ekki námskeiðið sem hentar þér, endilega hafðu þá samband við okkur. Kristín og Dianaicelandic@mss.is / 421 7500 Hæfniviðmið í íslensku útfrá evrópska tungumálarammanum
59.500 kr.
Ég ákvað að fara í raunfærnimat vegna þess að ég þekkti manneskju sem hafði farið í svona mat. Síðan matið fór fram er ég búin að klára nám í matartækni frá MK. Ég fékk helling metið í raunfærnimatinu. Ég myndi segja við þann sem er að hugsa um að fara í svona mat að drífa sig því þetta er algjör snilld að eiga möguleika á því að ná sér í réttindi með svona auðveldum hætti.
Bryndís Rúnarsdóttir - þátttakandi í raunfærnimati

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum var stofnuð 10. desember 1997. Mikil fjölgun valkosta varð í menntunarmálum á Suðurnesjum við stofnun Miðstöðvarinnar. Þar með varð aðgengi almennings að námskeiðum meira og aukið svigrúm skapaðist til sí- og endurmenntunar. Á þeim árum sem Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum hefur verið starfrækt hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt og námsframboðið tekið mið af þörfum viðskiptavina hverju sinni.
Meginhlutverk Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum er að efla sí- og endurmenntun Suðurnesjamanna, auka menntun og lífgæði íbúa svæðisins og efla þannig einstaklinga og atvinnulíf.
Miðstöðin leggur metnað sinn í að veita ráðgjöf og persónulega þjónustu ásamt umhverfi til náms þar sem einstaklingum líður vel.