Fréttir / 8. janúar 2026

Fare Green - Green education empowering communities

Deila:
Fare Green - Green education empowering communities

MSS tekur nú þátt í verkefni sem ber heitið Fare Green - Green education empowering communities. Samstarfsaðilar verkefnisins vinna að því að þróa sérsniðna rafræna fræðslu fyrir smærri ferðaþjónustufyrirtæki í norrænum samfélögum. Áhersla er á sjálfbæra ferðaþjónustu, hringrásarhagkerfi og þróun nærsamfélaga. Verkefnið er fjármagnað af þátttökuaðilum og NORA (Nordic Atlantic Cooperation) sem er stofnun sem starfar innan Norrænu ráðherranefndarinnar.

Samstarfshópurinn samanstendur af fjórum rótgrónum aðilum á sviði starfsmenntunar og símenntunar frá Íslandi, Noregi og Kanada, auk eigenda tveggja lítilla fyrirtækja annars vegar frá Færeyjum og hins frá Íslandi.

  • Fagskolen Rogaland – Stavanger, Noregi
  • Fagskulen Vestland – Bergen, Noregi
  • Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum – Reykjanesbær, Íslandi
  • Niagara College – Niagara, Kanada
  • Go Local – Mykines, Færeyjum
  • EMZ – Reykjanesbær, Íslandi

Verkefnið miðar að því að:

  • Búa til sérsniðna fræðslu og þjálfun fyrir smærri ferðaþjónustufyrirtæki
  • Veita tækifæri til tengslamyndunar
  • Þróa opinn stafrænan vettvang fyrir miðlun þekkingar
  • Efla smærri samfélög með fræðslu á sviði ferðaþjónustu.
  • Stuðla að menningarvitund og verndun menningararfs
  • Efla efnahagslega þróun með sjálfbærri ferðaþjónustu

Vinna við verkefnið er vel á veg komin og erum við nú að hefja vinnu á ári tvö en verkefnið er til þriggja ára.

Hér má fræðast betur um verkefnið og fylgjast með framvindu þess:

Heimasíða - faregreen.org

Instagram

Linkedin