Hér má finna yfirlit yfir þau námskeið og námsbrautir sem eru í boði hverju sinni hjá MSS. Námsframboðið er í stöðugri þróun og reglulega bætast við ný námskeið. Við hvetjum því áhugasama til að fylgjast reglulega með síðunni.
Hér má finna yfirlit yfir þau námskeið og námsbrautir sem eru í boði hverju sinni hjá MSS. Námsframboðið er í stöðugri þróun og reglulega bætast við ný námskeið. Við hvetjum því áhugasama til að fylgjast reglulega með síðunni.
Námskeið og námsbrautir fara af stað ef næg þátttaka næst svo gott er að skrá sig tímanlega því nokkrum dögum fyrir upphafsdagsetningu er tekin ákvörðun um hvort lágmarksþátttaka hafi náðst. Við vekjum athygli á að einnig er nauðsynlegt að skrá sig á þau námskeið sem eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Námsbrautirnar eru frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og gilda til eininga á framhaldsskólastigi.

21. apríl 2026
Viltu vera öruggari í ensku? Þetta námskeið er fyrir byrjendur sem búa yfir lítilli eða engri grunnfærni í ensku og vilja styrkja sig í orðaforða sem nýtist í daglegu lífi.
Unnið er með hagnýtan orðaforða á fjölbreyttan hátt sem og grunnatriði í enskri málfræði í gegnum ritað- og talaðmál. Námskeiðið er opið bæði nýjum nemendum og þeim sem hafa setið fyrra námskeið hjá MSS.
Námskeið fer af stað þegar lágmarksþátttaka næst.
Ef þið eruð að greiða í stéttarfélag hvetjum við ykkur til að sækja um námstyrk,því flest stétttarfélög bjóða upp á námskeiðsstyrki.
Kennslufyrirkomulag:Kennsla fer fram þriðjudaga og fimmtudaga kl 18:00-20:00
Nánari upplýsingar gefur:Jóhanna María Kristinsdóttirjohanna@mss.is421 7500
Do you want to feel more confident in English? This course is for beginners who have little to no basic knowledge of English and want to strengthen their vocabulary for everyday life.
The course focuses on practical, everyday language. Participants work with useful vocabulary in a variety of ways, as well as key points of English grammar, through both spoken and written activities. The course is open to both new students and to those who have previously attended an English course at MSS.
The course starts once the minimum number of participants has registered.
If you are a part of a union, you are encouraged to apply for a study grant, as most unions offer financial support for our courses.
Teaching schedule:Classes take place on Tuesdays and Thursdays from 18:00 to 20:00.
For further information, please contact:Jóhanna María Kristinsdóttirjohanna@mss.is421 7500
37.500 kr.

21. apríl 2026
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Endurmenntun Háskóla ÍslandsSkráning fer fram hjá Endurmenntun
Vertu með í gervigreindarbyltingunniLærðu að nota gervigreind á hagnýtan og öruggan hátt án þess að týnast í endalausum möguleikum.Þetta er tveggja daga, verklegt námskeið sem byggir upp sjálfstraust og sjálfstæði í notkun gervigreindar. Þú færð skýra undirstöðu í gervigreindarlæsi og lærir að beita gervigreind í fjölbreyttum verkefnum í starfi og daglegu lífi.Kennt er fyrst og fremst á ChatGPT en þekkingin yfirfærist auðveldlega yfir á Copilot, Gemini, Claude og aðrar spunagreindarlausnir.
Námskeiðið fer fram hjá MSS dagana 21. og 22. apríl frá kl. 08:30 - 12:00
Styrkleikar námskeiðsins:- Kennsla frá raunverulegum sérfræðingum sem vinna við að innleiða gervigreindarlausnir í fyrirtæki. - Lærir spunagreindarlæsi: eftir námskeiðið munt þú skilja tæknina betur, hverjar takmarkanirnar eru og hvernig þú stýrir henni á öruggan hátt.- Blandað fyrirkomulag: fyrirlestrar og æfingar til skiptis, með nægum tíma fyrir spurningar og aðstoð.
Dagur 1 — Grunnur og samskipti við gervigreind- ChatGPT frá grunni: viðmót, stillingar og lykilhugtök.- Gervigreindarlæsi, takmarkanir og gæðamat: hverju á að treysta, hvað þarf að sannreyna.- Hugsunarlíkön og samskipti: hvernig á að fá betri niðurstöður.- Fjölbreytt sýnidæmi og æfingar.
Dagur 2 — Tól, gögn og verkefnavinna- Notkun helstu tóla ChatGPT: myndrænt efni, rödd og vinna með skjöl.- Greining og framsetning gagna.- Verklag í stærri verkefnum: upplýsingaöflun, skipulag og samvinna tóla.- Verkefni sem krefjast notkunar margra tóla.
Þú lærir að nota ChatGPT í starfi og einkalífi. Lærir á helstu tól til að vinna með texta, gögn og myndrænt efni. Lærir að nota gervigreind án þess að vera í vafa um hvað má m.t.t. persónuverndar og gagnaöryggis. Skilur hvernig þú færð sem mest út úr gervigreindinni.
Sverrir Heiðar Davíðsson er hugbúnaðarverkfræðingur og annar stofnandi Javelin AI, M.Sc. í gervigreind og gagnavísindum (DTU) með yfir 7 ár af reynslu með gervigreind.Pétur Már Sigurðsson, sérfræðingur innleiðingar gervigreindarlausna hjá Javelin AI. Hann hefur yfir 7 ára reynslu af hugbúnaðarþróun og hefur hannað og forritað gervigreindarlausnir í 4 ár.
ATH Skráning fer fram hjá Endurmenntun
69.900 kr.

28. apríl 2026
Sýnatökunámskeið
Á námskeiðinu er fjallað um helstu blóðtökukerfi sem notuð eru við sýnatöku, þar á meðal Becton Dickinson, Vacuette og Sarstedt. Lögð er áhersla á undirstöðuatriði í sýnatökuferlinu, mikilvægi réttrar glasa röðunar og þá þætti sem geta haft áhrif á gæði sýna. Meðal annars verður farið yfir áhættuþætti tengda framkvæmd sýnatöku og skoðað hvernig slík atriði geta haft áhrif á niðurstöður. Einnig verður rætt um rauðkornarof, helstu orsakir þess og leiðir til að draga úr líkum á því til að stuðla að áreiðanlegri mælingum. Þá verður kynnt hvaða gagnlegar upplýsingar má nálgast í Þjónustuhandbók Landspítala.
Leiðbeinendur:Erla Bragadóttir, lífeindafræðingur og kennslustjóri á Rannsóknarkjarna LSHEdda Ásgerður Skúladóttir, lífeindafræðingur á Rannsóknarkjarna LSH
Námsmat:100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Dagsetning og tími:Þriðjudaginn 28. apríl kl. 17-22
Námskeiðið er 5 klukkustundir og gefur 6 punkta til sjúkraliða.
22.000 kr.

14. ágúst 2026
Menntastoðir eru undirbúningsnám fyrir frumgreinadeildir Keilis, Bifrastar og H.R.
Auk þess má meta námið sem hluta af bóklegum greinum í iðnnámi. Lokamarkmið Menntastoða er fyrst og fremst að námsmenn auki færni sína í þeim námsþáttum sem kenndir eru þannig að þeir geti tekist á við nám við frumgreinadeild háskóla, þ.e. uppfylli viðmið á þrepi tvö.
Námið er ætlað markhópi framhaldsfræðslunnar*
Námið er einnig í boði í staðnámi.Markmið eru að námsmaður:
• þekki þær leiðir sem henta honum til náms
• hafi jákvæð viðhorf gagnvart áframhaldandi námi
• hafi bætt sjálfstraust sitt og aukið færni sína í samskiptum við aðra
• sé fær um að vinna verkefni sjálfstætt og skipulega, afla og miðla upplýsingum með ýmsu móti.Námsgreinar:EnskaDanskaÍslenskaLokaverkefniNámstækniStærðfræðiSamfélagsgreinUpplýsingatækni
Námsmat: Verkefnaskil, virk þátttaka, kannanir eða símat.Kennslufyrirkomulag: Fjarnám Menntastoða tekur um 10 mánuði og telur til allt að 60 framhaldsskólaeininga. Kennt er í lotum og er kennsla einn virkan eftirmiðdag í viku. Þátttakendur hafa val um hvort það mæti á staðinn, séu með á fjarfundi eða horfi síðar þar sem kennslan er tekin upp. Þessi leið hentar því fólki sem er í vinnu þar sem ekki er um dagskóla að ræða. Samtals er gert ráð fyrir 1200 klukkustundum í vinnuframlag nemenda.Hér má skoða námskrá Menntastoða í heild og lesa um einstaka áfanga - Námskrá
Námið er einnig í boði í staðnámi.Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga og atvinnuleitendur geta leitað til VMST.Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Linda og Hólmfríður, í síma 421-7500 eða á menntastodir@mss.isNámið er niðurgreitt af Fræðslusjóði - verð er birt með fyrirvara um breytingar á verðskrá Fræðslusjóðs
* Markhópur framhaldsfræðslulaga eru allir þeir sem EKKI hafa lokið fullu námi frá framhaldsskóla þ.e. ekki lokið stúdentsprófi, iðnnámi eða sambærilegu námi og þeir sem EKKI hafa viðurkennt nám eða viðurkennda færni á sama þrepi til starfa í íslensku samfélagi, þótt þeir hafi lokið námi erlendis. Þeir sem hafa lokið viðurkenndu námi frá framhaldsskóla þ.e. stúdentsprófi, iðnnámi eða sambærilegu námi teljast til markhóps laganna sé nám þeirra úrelt eða umskólunar þörf af rökstuddum ástæðum.
226.500 kr.

17. ágúst 2026
Menntastoðir eru undirbúningsnám fyrir frumgreinadeildir Keilis, Bifrastar og H.R.
Auk þess má meta námið sem hluta af bóklegum greinum í iðnnámi. Lokamarkmið Menntastoða er fyrst og fremst að námsmenn auki færni sína í þeim námsþáttum sem kenndir eru þannig að þeir geti tekist á við nám við frumgreinadeild háskóla, þ.e. uppfylli viðmið á þrepi tvö.
Námið er einnig í boði í fjarnámi.Markmið eru að námsmaður:þekki þær leiðir sem henta honum til námshafi jákvæð viðhorf gagnvart áframhaldandi námihafi bætt sjálfstraust sitt og aukið færni sína í samskiptum við aðra sé fær um að vinna verkefni sjálfstætt og skipulega, afla og miðla upplýsingum með ýmsu móti Námsgreinar:EnskaDanskaÍslenskaLokaverkefniNámstækniSamfélagsgreinStærðfræðiUpplýsingatækniNámsmat
Verkefnaskil, kannanir og virk þátttaka (Símat).Kennslufyrirkomulag
Menntastoðir staðnám tekur rúma fjóra mánuði og telur til allt að 60 framhaldsskólaeininga. Kennsla á sér stað virka daga frá klukkan 08:30 – 15:30 nema á föstudögum til 12:10 í húsnæði MSS. Staðnám er kjörið fyrir þá nemendum sem hafa svigrúm til þess að ljúka námi á stuttum tíma.
Námið er einnig í boði í fjarnámi.
Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Linda og Hólmfríður, í síma 421-7500 eða á menntastodir@mss.is
Haft verður samband við alla skráða nemendur í byrjun ágústVerð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
226.500 kr.

19. ágúst 2026
Starfar þú á leikskóla eða í grunnskóla og vilt efla þig sem starfskraft? Þá er þetta nám mögulega eitthvað sem þú vilt skoða nánar.MSS býður upp á spennandi nám í leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú sem er fyrir ófaglært starfsfólk sem starfar í leik- eða grunnskóla. Námið er einingabært og er námsleiðin kennd samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.ForkröfurNámið er fyrir þá sem eru 23 ára og eldri og hafa að baki þriggja ára starfsreynslu og starfa við uppeldi og umönnun barna í leik- og grunnskólum og þá sem hafa lokið starfstengdum námskeiðum, samtals 200-240 kennslustundum.Þátttakendum er boðið upp á raunfærnimat hjá náms- og starfsráðgjöfum MSS í upphafi námsleiðar, sem getur talið til styttingar á námsleiðinni. Raunfærnimat er eingöngu fyrir starfsfólk 23 ára og eldri sem býr að a.m.k. þriggja ára starfsreynslu á leik- eða grunnskóla.Verð
Leikskólaliðabrú: 187.100 kr.Stuðningsfulltrúabrú: 201.900 kr.Hægt er að sækja um námsstyrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga. Ekki gleyma að kanna þinn rétt.Athugið að verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar Kennslufyrirkomulag
Nám á leikskóla- og stuðningsfulltrúabrú spannar fjórar annir en það er mögulegt að taka námið á styttri tíma.Kennslufyrirkomulag byggir á fjar- og staðkennslu og verður kennt í lotum þar sem áhersla er á einn áfanga í einu. Þátttakendur hafa val um hvort þeir mæti á staðinn, taki þátt í gegnum fjarfund eða horfi á upptöku síðar. Kennsla fer fram á miðvikudögum frá 17:15-19:15 og einn laugardag í upphafi hverrar lotu (þrír til fjórir áfangar kenndir á önn). Auk þess verða opnir verkefnatímar einu sinni í viku með kennara frá 17:00-19:00.Að loknu námi útskrifast þátttakendur sem leikskólaliðar og / eða stuðningsfulltrúar.Nánari upplýsingar veita Linda Björk, verkefnastýra námsleiðar, í síma 412-5952 eða á linda@mss.is og Steinunn, náms- og starfsráðgjafi, í síma 412-5940 eða á steinunn@mss.is
189.000 kr.

24. ágúst 2026
Do you want to work with children in kindergarten but don't have enough skills in Icelandic?
This course is part 1 of 2
The second part, Leikskólastarf II, starts in October 2026All participants will be invited to an interviewFor whomThe program is intended for individuals who want to work in a kindergarten but need stronger skills in the Icelandic language.As all kindergarten staff, students must present a criminal record certificate from their home country.Goals:Empower participants to use the Icelandic language while working with childrenIncrease competency to work professionally with childrenParticipate in various workshops focused on practical learningGain practice experience through vocational training in kindergartenTeaching methods:Workshop taught at MSS and at workplaces collaborating with MSS.Assessment:Assessment will be based on practical exercises and active participation.Duration:Total 128 hoursThe program starts 24 of August 2026 and ends on 16 December 2026.
Classes are held on weekdays from 8:30 - 13:00.Taught according to a certified curriculum from the Icelandic Centre for Education (Fræðslumiðstöð atvinnulífsins).The program is funded by the Directorate of Labour (Vinnumálastofnun).Union study funds may apply in your case.Further information:Hólmfríður and Linda
Tel: +354 4217500
Email: namskeid@mss.is Price:Total price for both Leikskólastarf and Icelandic course is 111.500 kr.
( Leikskólastarf 52.000 kr. and Icelandic 59.500 kr.)The price of the program published is subject to changesVerð: 111.500
Tímabil: 24. ágúst - 2. október
111.500 kr.

2. september 2026
Do you want to work in social or health care but do not have sufficient skills in Icelandic? Part II starts 19th of February.ParticipantsThe program is aimed at those who wish to work in social or health care, in such institutions as residential homes, home services or care/ support for the sick or disabled.RequirementsThe requirement for admission is skills in Icelandic corresponding to Icelandic Level II and it is desirable to have experience or studies useful in the job.Goals of the CourseEmpower participants in using Icelandic with emphasis on care workIncrease participant‘s ability to cope with a job in the care sectorVarious workshops focusing on practical learningOn-the-job trainingTeaching methods:Great emphasis is placed on diverse teaching methods.LocationsTaught in MSS and various workplaces.AssessmentProject work and active participation.Duration168 hours totalDates2nd of September to 14th of October 2026 Classes taught every weekday from 13:00 - 15:45. It will be taught according to the curriculum of the National Education Centre. The programme is supported by the Directorate of Labour. Remember you can apply for grants from trade union funds.Further information:Phone 4217500 by e-mail namskeid@mss.isPrices for study programmes are published subject to change
111.500 kr.

7. september 2026
Hefst haustið 2026 - Markmið með náminu er að einstaklingar sem sinna samfélagstúlkun öðlist þá hæfni sem þarf til að sinna skilgreindum viðfangsefnum, samkvæmt hæfnigreiningu starfsins, á árangursríkan hátt og geti þróast í starfi.Einstaklingar sem sækja námið þurfa að hafa gott vald á íslensku og því tungumáli sem þau túlka.Námsgreinar og áherslur:
Samfélagstúlkur miðlar unnlega merkingu á milli aðila sem ekki tala sama tungumál, án þess að taka afstöðu til viðfangsefnisins. Helstu áherslur í náminu eru að: undirbúa verkefni og ganga úr skugga um þekkingu á viðfangsefnum, að læra túlkatækni og verklag túlkunar, fjölmenningarfærni, góð samskipti og samvinnu með það að leiðarljósi að undirbúa samfélagstúlka undir starf.Samfélagstúlkur þarf að:vinna að lausnumhafa skilning á starfsemi fyrirtækjavinna undir álagi og við ólíkar aðstæðureiga í góðum samskiptum við viðskiptavininnbúa yfir natni, nákvæmni og þrautseigju/seigluhafa sjálfsstjórn og sjálfstrauststuðla að góðum samskiptum og samstarfiNámsmat
Ekki eru lögð fyrir próf í náminu en gert er ráð fyrir verkefnavinnu, mæting á fjarfundi og mætingaskyldu í staðlotur.Kennslan fer fram einn virkan dag í viku, almennt frá 17:30-20:30, nema aðrar upplýsingar koma frá kennara.Kennslufyrirkomulag
Námið er 165 kennslustundir. Námið er stað- og fjarnám. *Skipulag verður birt þegar nær dregur.*Farið verður af stað með námsleiðina þegar lágmarksfjölda þátttakenda hefur verið náð. Styrkir vegna skólagjaldaHægt er að sækja um styrk vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Kristín og Hólmfríður í síma 421-7500 eða á samfelagstulkun@mss.is
54.200 kr.

7. september 2026
Skrifstofuskóli II er sérhæft nám fyrir fólk sem hefur áhuga á að ná sér í góðan undirbúning fyrir skrifstofustörf eða hugar að frekara námi í þeim geira. Að námi loknu eiga námsmenn að vera færir um að starfa á skrifstofu og og verða fjölhæfur og góður starfskraftur. Þeir eiga að hafa tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð, hafa góða innsýn í rekstur fyrirtækja og góða bókhaldsþekkingu. Námið er 240 kennslustundir og mögulegt að meta það til 8 eininga á framhaldsskólastigiMarkmið að námsmaður:efli sjálfstraust sitt og öryggi til faglegra starfa á skrifstofuauki færni sína til að vinna störf á nútímaskrifstofuauki þjónustufærni sínahafi góða innsýn í rekstur fyrirtækja hafi öðlast góða bókhaldsþekkingu öðlist skilning og reynslu á verkfærum og verkferlum sem nýtist þeim í starfiNámsgreinar og áherslur:SkrifstofufærniTölvur og upplýsingatækni MálnotkunVerkefnastjórnunVinnan og vinnumarkaðurinnÞjónustaTölvubókhaldVaxtareikningurÁrsreikningarVettvangsnámNámsmat
Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.Kennslufyrirkomulag
Kennt tvö síðdegi í viku, þri- og fimmtudaga frá kl 17:00 til kl 20:35. Ekki eru lögð próf fyrir í náminu en verkefnavinna/skil og virk þátttaka. Kennt er samkvæmt námskrá viðurkenndri af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Dreifinám er kennt með þeim hætti að hluti náms fer fram í gegnum netið, þá eru fyrirlestrar, verkefni og efni frá kennurum aðgengilegt á kennslukerfi MSS. Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.Nánari upplýsingar veita Díana Sól og Hólmfríður í síma 421-7500 eða á skrifstofuskoli@mss.is Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
78.800 kr.

8. september 2026
Skrifstofuskólinn er námsleið fyrir þá sem sinna almennum skrifstofustörfum eða stefna á að starfa við skrifstofustörf. Tilgangur skrifstofuskólans er að auka hæfni námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og öðlast góða þekkingu og læra að færa bókhald.Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og starfsfærni. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem auðvelt er að yfirfæra á almenn skrifstofustörf.
Markmið eru að námsmaður:efli sjálfstraust sitt og öryggi til faglegra starfa á skrifstofuauki færni sína til að vinna störf á nútímaskrifstofuauki þjónustufærni sínanái valdi á tölvufærni sem krafist er við almenn skrifstofustörfauki námsfærni sínaNámsgreinar:VerslunarreikningurNámsdagbók og markmiðasetningÞjónustaGagnvirk samskiptiHandfært bókhaldSjálfstraustTölvubókhaldNámstækniFærnimappa og ferilsskráTölvu- og upplýsingaleikni Námsmat:
Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.
Kennslufyrirkomulag:
Kennt er tvö síðdegi í viku, þri- og fimmtudaga frá kl 17:00 til kl 20:35 og annan hvern laugardag frá 09:00 - 12:35.
Ekki eru lögð próf fyrir í náminu en verkefnavinna/skil og virk þátttaka. Kennt er samkvæmt námskrá viðurkenndri af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Dreifinám er kennt með þeim hætti að hluti náms fer fram í gegnum netið, þá eru fyrirlestrar, verkefni og efni frá kennurum aðgengilegt á kennslukerfi MSS.
Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar veita Díana Sól og Hólmfríður síma 421-7500 eða á skrifstofuskoli@mss.is Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
78.800 kr.

9. september 2026
Námið er ætlað þeim sem vinna eða vilja vinna í félags og heilbrigðisþjónustu og hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi. Námsþættir:Skilningur á starfsemi í félags og heilbrigðisþjónustu, að vinna að lausnum og undir álagi, fjömenningarfærni, vellíðan, smitvarnir, iðja og iðjuþjálfun, umönnun, frumkvæði, gæðavitund og viðskiptavinurinn í brennidepli.Kennslufyrirkomulag:Kennt verður í dreifnámi í gegnum Teams á mánudögum og miðvikudögum kl. 17-20 og staðlotur einu sinni í mánuði.
Mögulegt er að hlusta á upptökur eftir á en þá þarf að skila inn ígrundun og verkefni um efni tímans. Stefán E. Hafsteinsson iðjuþjálfi og Torfi Jónsson sálfræðingur kenna ásamt fleiri gestakennurnum.MarkmiðAð auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum skjólstæðinga til að efla lífsgæði þeirra og virkni.Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi skjólstæðinga og starfsfólks.NámsmatEkki eru lögð fyrir próf í náminu en verkefnavinna og virk þátttaka. Lengd:
Alls 210 klst.Mögulegt að meta námið til 10 eininga á framhaldsskólastigi.Tími:Hefst 9. september og lýkur 16. desember 2026 Kennt verður samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins Nánari upplýsingar gefa Nanna Bára og Hólmfríður í síma 4217500 í tölvupósti nanna@mss.is /holmfridur@mss.is Minnum á styrki starfsmenntajóða stéttafélaganaNámið er án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmennt - skráning í á heimasíðu StarfsmenntarEinnig greiðir stéttarfélagið Efling námið að fullu fyrir sína félagsmennVerð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar
93.500 kr.

16. september 2026
Markmið námsins er að auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fólks með fötlun, til að efla lífsgæði þeirra og virkni. Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fatlaðs fólks með því að veita þeim viðeigandi þjónustu.
Námið er ætlað þeim sem starfa eða vilja starfa við umönnun fólks með fötlun en í því felst að vinna við þjónustu á heimilum og stofnunum og getur einnig hentað þeim sem starfa í þjónustu við aldraða og sjúka og fyrir þá sem vinna með börnum og unglingum í vanda. Breyttar áherslur í starfi kalla á aukna fagmennsku og markvissa starfsþróun þannig að starfsfólk geti veitt framsækna og metnaðarfulla þjónustu.
Námið spannar 324 klukkustundir en 164 stundir eru með leiðbeinanda og 160 stundir án leiðbeinanda (starfsreynsla/þjálfun). Mögulegt er að meta námið til 16 eininga á framhaldsskólastigi.Námið er blanda af verklegu námi, fyrirlestrum og verkefnavinnu.Námsþættir:
Velferðarþjónustan og hugmyndafræði fötlunar
Fatlanir og þjónustuþörf
Erfðir og þroski
Mannréttindi og siðferði
Geðsjúkdómar og lyf
Lífstíll og heilsa
Samskipti og samvinna
Starfið og námið
Áföll og afleiðingar
Framkvæmd þjónustu við fatlað fólk
Lokaverkefni
StarfsþjálfunMarkmiðAð auka færni og þekkingu námsmanna á aðstæðum og þörfum fólks með fötlun til að efla lífsgæði þeirra og virkni.Í náminu er lögð áhersla á sjálfseflingu, lífsgæði og réttindi fólks með fötlun með því að veita þeim viðeigandi þjónustu.FyrirkomulagÁ Teams í fjarnámi og í húsnæði MSS að Krossmóa 4a, 3. hæð. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 17-20:30 og staðlota einn laugardag í mánuði. Námið er í heildina 324 klukkustundir. Mögulegt er að hlutsta á upptökur eftir á en þá þarf að skila inn ígrundun og verkefni um efni tímans. Engin lokapróf eru í náminu en lögð er áhersla á verkefnavinnu, verklegar æfingar, hópavinnu, umræður og rökræður. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið til allt að 16 eininga á framhaldsskólastigi.Námsmat:Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.Tími:Hefst 19. septemner og lýkur þann 16. desember, 2026Verð: 81.000 kr.Fræðslusjóðir stéttarfélaganna niðurgreiða námið. Námið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar að kostnaðarlausu - skráning á heimasíðu StarfsmenntarEinnig greiðir stéttarfélagið Efling námið að fullu fyrir sína félagsmennNánari upplýsingar um námið veita Nanna Bára og Hólmfríður í síma 4217500 í tölvupósti nanna@mss.is / namskeid@mss.is
81.700 kr.

21. september 2026
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum kynnir með stolti starfsréttindanámskeið dagforeldra.
Allir þeir sem hafa hug á að starfa sem dagforeldrar þurfa að ljúka við starfsréttindanámskeið dagforeldra. Núna hefur MSS tekið við þessu mikilvæga námskeiðshaldi.Til þess að allir hafi jafnt tækifæri til náms verður námskeiðið kennt í gegnum forritið Teams. Brunavarnafræðsla og skyndihjálp eru verklegir þættir sem fram fara á öðrum tíma en uppgefið er.
TímabilFimm vikna námskeið sem hefst um leið og næg þátttaka hefur náðst.Kennsla fer fram í gegnum samskiptaforritið Teams.Mánudagar og miðvikudagar klukkan 17:00 – 20:30Laugardagar klukkan 09:00 – 12:20Einn laugardagur frá klukkan 09:00 - 16:00 Öryggismál - staðlota skyldumæting
Námskeiðið fer fram á íslensku - mætingarskylda.
UpplýsingarNánari upplýsingar veitir Hólmfríður - namskeid@mss.is eða í síma 421-7500
Verð130.680.krHægt er að sækja styrki vegna skólagjalda til: Fræðslusjóðs stéttafélaga VMSTSveitarfélagaÞátttakendur þurfa sjálfir að sækja um endurgreiðslu frá sínu sveitarfélagi og þurfa að vera með virka umsókn sem verðandi dagforeldri.
Kannaðu hvað þinn heimabær vill gera fyrir þig!
Eftir að námskeiði lýkur er það Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála sem gefur út starfsleyfi.
130.680 kr.

21. september 2026
Would you like to learn about Food safety and Quality - Online?Safety and professional knowledge in food handling are essential in all food production and service settings. This course is intended for anyone who works, or plans to work, in food processing and handling, such as in kitchens, restaurants, food service, or other roles involving food preparation.Due to positive feedback, we are once again offering this course as an online (distance learning) programme.The course runs from 21 September to 2 November 2026. Classes are held on Mondays and Thursdays from 17:00–19:00. Participants attend online from their own location. Recordings will be available for those who are unable to attend live sessions.Course topics:Food microbiology.Internal control, HACCP/GAMES.Preparation of menus, product knowledge and food categories.Increasing healthiness of meals and prepared food.Shelf life, sensory assessment, product knowledge.Allergies and intolerances.Cleaning and disinfection.The course is taught in accordance with the curriculum of the Education and Training Service Centre (Fræðslumiðstöð atvinnulífsins).AssessmentActive participation in the course.Further information:Jóhanna María and Hólmfríður
Phone: 421 7500
Email: namskeid@mss.isGrants for tuition fees:Participants may apply for grants from their trade union education funds to cover tuition fees. Please contact your trade union for further information.The course is free of charge for members of the affiliated unions and partner funds of Starfsmennt. Registration is available on the Starfsmennt website.Price of course fees is published but could be modified Verð: 20.000
Tímabil: 21. september - 2. nóvember
20.000 kr.

21. september 2026
Viltu kynna þér matvælaöryggi?Öryggi og fagleg þekking í meðhöndlun matvæla er afar mikilvæg í allri matvælavinnslu. Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa eða hyggjast starfa við matvælavinnslu, svo sem í eldhúsum, á veitingastöðum, við framreiðslu matvæla eða önnur störf þar sem unnið er með mat.Vegna góðra viðbragða bjóðum við aftur upp á námskeiðið í fjarnámi.Námið fer fram 21. september til 2. nóvember 2026. Kennsla er á mánudögum og fimmtudögum kl. 17:00–19:00. Nemendur fylgjast með kennslu í gegnum netið, hver á sínum stað. Upptökur verða aðgengilegar fyrir þá sem ekki geta verið með í rauntíma.Námsþættir:MatvælaörverufræðiInnra eftirlit, HACCP/GÁMESGerð matseðla, vöruþekking og fæðuflokkarnirAð auka hollustu máltíða og tilbúinna matvælaGeymsluþol, skynmat, vöruþekkingOfnæmi og óþolÞrif og sótthreinsunKennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námsmat:Virk þátttaka í náminu.Nánari upplýsingar veita:Jóhanna María og Hólmfríður
*Sími 4217500
*Netfang namskeid@mss.is Styrkir vegna skólagjalda:Hægt er að sækja um styrk til fræðslusjóða stéttarfélaga vegna skólagjalda. Leitið upplýsinga hjá ykkar stéttarfélagi.Námið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða Starfsmenntar að kostnaðarlausu - skráning á heimasíðu StarfsmenntarVerð: 20.000
Tímabil: 21. september - 2. nóvember
20.000 kr.

29. september 2026
Á þessu ítarlega og gagnlega námskeiði er vandlega farið yfir allt sem nauðsynlegt er að vita varðandi lífeyrismál og fjármálahlið starfsloka. Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja bæta þekkingu sína á lífeyrismálum sem og þeim sem aðstoða lífeyrisþega. Námskeiðið stendur öllum til boða en efnið miðast við 55 ára og eldri.
Leiðbeinandi er Björn Berg sem hefir haldið hundruð fyrirlestra og námskeiða um fjármál hjá fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og skólum. Ávinningur þátttakendaÞátttakendur öðlast betri yfirsýn yfir réttindi sín og þá valkosti sem í boði eru. Bætt þekking dregur úr líkum á kostnaðarsömum mistökum og gefur færi á að hámarka virði lífeyris og réttinda.
Efnistök eru: Hvenær og hvernig hentar að sækja lífeyrisgreiðslur?Hvernig göngum við á séreignarsparnað og hvaða áhrif hefur tilgreind séreign?Hvað þarf að vita varðandi greiðslur og skerðingar Tryggingastofnunar?Er skynsamlegt að sækja hálfan lífeyri?Hvernig deili ég lífeyri með makanum mínum?Hvaða skatta kem ég til með að greiða? Fyrirkomulag:Námskeiðið mun fara fram í húsnæði MSS þriðjudaginn 29.september frá klukkan 17:00 – 20:00
Styrkir vegna námskeiðsgjalda:Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiðsgjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar veita:Díana Karen og Hólmfríður - tomstundanamskeid@mss.is - sími 421-7500
19.900 kr.

29. september 2026
Grunnmennt er ætlað fólki, 18 ára og eldri, sem vill styrkja sig í kjarnagreinunum (íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku) og undirbúa sig undir frekara nám (sem dæmi Menntastoðir). Í náminu er auk þess lögð áhersla á mikilvæga námsþætti fyrir daglegt líf og störf, svo sem námstækni, sjálfstyrkingu, samskipti og tölvu- og upplýsingatækni. Námið hentar vel fólki sem er með stutta formlega skólagöngu að baki, ekki verið lengi í námi, vill fara rólega af stað og fá góðan stuðning, hvatningu og leiðsögn frá upphafi.MarkmiðAð byggja upp grunn í íslensku, dönsku, ensku, stærðfræði og tölvumAð stuðla að jákvæðu viðhorfi til námsAð auka sjálfstraust og færni í samskiptum við aðraAð þjálfa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögðAð auðvelda nemendum að takast á við ný verkefni og / eða áframhaldandi námNámsgreinarDanskaEnskaFramsögnÍslenskaLokaverkefniMarkmiðasetningNámstækniSjálfstyrkingStærðfræðiTölvurNámsmatVerkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka. KennslufyrirkomulagNámið er 300 kennslustundir og er kennt alla virka daga frá klukkan 08:30 – 12:15. Engin hefðbundin lokapróf eru en lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat, t.d. verkefnavinna, kannanir, hópavinna, umræður og rökræður. Þegar líður á kennsluönnina verður smám saman lögð áhersla á aukið sjálfstæði og öryggi nemanda í heimanámi. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.Við námslok er mögulegt að óska eftir mati á náminu í framhaldsskóla. Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið allt upp að 15 einingum. Nánari upplýsingarNánari upplýsingar veita Linda og Hólmfríður í síma 421-7500 eða grunnmennt@mss.is Verð: 98.500
Tímabil: 29. september - 16. desember
98.500 kr.

5. október 2026
Á námskeiðinu verður fjallað um líffræði húðar, gróningu sára, helstu tegundir sára, meðferð, umbúðir og eiginleika þeirra. Verkleg kennsla í umbúðalögum. Einnig verður fjallað um það hvernig andlegir þættir geta haft áhrif á bata sjúklings.
Leiðbeinandi: Eyrún Ósk Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á göngudeild skurðlækninga B3.
Tími: 5., 6. og 8. október Klukkan:17:00 – 21:00
Punktar fyrir sjúkraliða: 15 punktar fyrir 12 klst námskeið
41.500 kr.

3. nóvember 2026
Á námskeiðinu er fjallað um mismunandi tegundir sykursýki og hvernig næring og mataræði gegna lykilhlutverki í meðferð og vellíðan einstaklinga með sjúkdóminn. Lögð er áhersla á helstu atriði í mataræði eftir tegund sykursýki, með tilliti til þátta eins og lyfjameðferðar, aldurs, lífsstíls og einstaklingsbundinna þarfa. Námskeiðið veitir bæði fræðilega og hagnýta þekkingu sem nýtist þeim sem starfa á heilbrigðis- og velferðarsviði, sem og öðrum sem vilja auka skilning sinn á tengslum sykursýki og næringar.
Leiðbeinandi: Óla Kallý Magnúsdóttir, næringarfræðingur á Landspítala og doktor í næringarfræði.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Dagsetning og tími: Þriðjudaginn 3. nóvember og fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17-21
Námskeiðið er 8 klukkustundir og gefur 10 punkta til sjúkraliða.
34.500 kr.