Starfsréttindanámskeið dagforeldra

Starfsréttindanámskeið dagforeldra

21. september 2026 - 23. október 2026

Sækja um

Verð: 130.680 kr.

Um námskeiðið

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum kynnir með stolti starfsréttindanámskeið dagforeldra.


Allir þeir sem hafa hug á að starfa sem dagforeldrar þurfa að ljúka við starfsréttindanámskeið dagforeldra. Núna hefur MSS tekið við þessu mikilvæga námskeiðshaldi.

Til þess að allir hafi jafnt tækifæri til náms verður námskeiðið kennt í gegnum forritið Teams. 

Brunavarnafræðsla og skyndihjálp eru verklegir þættir sem fram fara á öðrum tíma en uppgefið er.


Tímabil

Fimm vikna námskeið sem hefst um leið og næg þátttaka hefur náðst.

Kennsla fer fram í gegnum samskiptaforritið Teams.

Mánudagar og miðvikudagar klukkan 17:00 – 20:30

Laugardagar klukkan 09:00 – 12:20

Einn laugardagur frá klukkan 09:00 - 16:00 Öryggismál - staðlota skyldumæting


Námskeiðið fer fram á íslensku - mætingarskylda.


Upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður - namskeid@mss.is eða í síma 421-7500


Verð

130.680.kr

Hægt er að sækja styrki vegna skólagjalda til:

  • Fræðslusjóðs stéttafélaga
  • VMST
  • Sveitarfélaga

Þátttakendur þurfa sjálfir að sækja um endurgreiðslu frá sínu sveitarfélagi

og þurfa að vera með virka umsókn sem verðandi dagforeldri.


Kannaðu hvað þinn heimabær vill gera fyrir þig!


Eftir að námskeiði lýkur er það Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála sem gefur út starfsleyfi.