Samfélagstúlkun

Samfélagstúlkun

7. september 2026 - 4. desember 2026

Sækja um

Verð: 54.200 kr.

Um námskeiðið

Hefst haustið 2026 - Markmið með náminu er að einstaklingar sem sinna samfélagstúlkun öðlist þá hæfni sem þarf til að sinna skilgreindum viðfangsefnum, samkvæmt hæfnigreiningu starfsins, á árangursríkan hátt og geti þróast í starfi.

Einstaklingar sem sækja námið þurfa að hafa gott vald á íslensku og því tungumáli sem þau túlka.

Námsgreinar og áherslur:
Samfélagstúlkur miðlar unnlega merkingu á milli aðila sem ekki tala sama tungumál, án þess að taka afstöðu til viðfangsefnisins. Helstu áherslur í náminu eru að: undirbúa verkefni og ganga úr skugga um þekkingu á viðfangsefnum, að læra túlkatækni og verklag túlkunar, fjölmenningarfærni, góð samskipti og samvinnu með það að leiðarljósi að undirbúa samfélagstúlka undir starf.

Samfélagstúlkur þarf að:

  • vinna að lausnum
  • hafa skilning á starfsemi fyrirtækja
  • vinna undir álagi og við ólíkar aðstæður
  • eiga í góðum samskiptum við viðskiptavininn
  • búa yfir natni, nákvæmni og þrautseigju/seiglu
  • hafa sjálfsstjórn og sjálfstraust
  • stuðla að góðum samskiptum og samstarfi

Námsmat
Ekki eru lögð fyrir próf í náminu en gert er ráð fyrir verkefnavinnu, mæting á fjarfundi og mætingaskyldu í staðlotur.

Kennslan fer fram einn virkan dag í viku, almennt frá 17:30-20:30, nema aðrar upplýsingar koma frá kennara.

Kennslufyrirkomulag
Námið er 165 kennslustundir. 

Námið er stað- og fjarnám. 

*Skipulag verður birt þegar nær dregur.

*Farið verður af stað með námsleiðina þegar lágmarksfjölda þátttakenda hefur verið náð. 

Styrkir vegna skólagjalda

Hægt er að sækja um styrk vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Kristín og Hólmfríður í síma 421-7500 eða á samfelagstulkun@mss.is