Sykursýki og næring

Sykursýki og næring

3. nóvember 2026 - 5. nóvember 2026

Sækja um

Verð: 34.500 kr.

Um námskeiðið

Á námskeiðinu er fjallað um mismunandi tegundir sykursýki og hvernig næring og mataræði gegna lykilhlutverki í meðferð og vellíðan einstaklinga með sjúkdóminn. Lögð er áhersla á helstu atriði í mataræði eftir tegund sykursýki, með tilliti til þátta eins og lyfjameðferðar, aldurs, lífsstíls og einstaklingsbundinna þarfa. Námskeiðið veitir bæði fræðilega og hagnýta þekkingu sem nýtist þeim sem starfa á heilbrigðis- og velferðarsviði, sem og öðrum sem vilja auka skilning sinn á tengslum sykursýki og næringar.


Leiðbeinandi:  Óla Kallý Magnúsdóttir, næringarfræðingur á Landspítala og doktor í næringarfræði.


Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.


Dagsetning og tími: Þriðjudaginn 3. nóvember og fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17-21


Námskeiðið er 8 klukkustundir og gefur 10 punkta til sjúkraliða.