
29. september 2026 - 16. desember 2026
Verð: 98.500 kr.
Grunnmennt er ætlað fólki, 18 ára og eldri, sem vill styrkja sig í kjarnagreinunum (íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku) og undirbúa sig undir frekara nám (sem dæmi Menntastoðir). Í náminu er auk þess lögð áhersla á mikilvæga námsþætti fyrir daglegt líf og störf, svo sem námstækni, sjálfstyrkingu, samskipti og tölvu- og upplýsingatækni. Námið hentar vel fólki sem er með stutta formlega skólagöngu að baki, ekki verið lengi í námi, vill fara rólega af stað og fá góðan stuðning, hvatningu og leiðsögn frá upphafi.
Markmið
Námsgreinar
Námsmat
Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.
Kennslufyrirkomulag
Námið er 300 kennslustundir og er kennt alla virka daga frá klukkan 08:30 – 12:15. Engin hefðbundin lokapróf eru en lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat, t.d. verkefnavinna, kannanir, hópavinna, umræður og rökræður. Þegar líður á kennsluönnina verður smám saman lögð áhersla á aukið sjálfstæði og öryggi nemanda í heimanámi. Kennt er samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Við námslok er mögulegt að óska eftir mati á náminu í framhaldsskóla. Mennta– og menningamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi námið allt upp að 15 einingum.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Linda og Hólmfríður í síma 421-7500 eða grunnmennt@mss.is
Verð: 98.500
Tímabil: 29. september - 16. desember