Skrifstofuskóli I

Skrifstofuskóli I

8. september 2026 - 16. desember 2026

Sækja um

Verð: 78.800 kr.

Um námskeiðið

Skrifstofuskólinn er námsleið fyrir þá sem sinna almennum skrifstofustörfum eða stefna á að starfa við skrifstofustörf. Tilgangur skrifstofuskólans er að auka hæfni námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og öðlast góða þekkingu og læra að færa bókhald.

Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og starfsfærni. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem auðvelt er að yfirfæra á almenn skrifstofustörf.

Markmið eru að námsmaður:

  • efli sjálfstraust sitt og öryggi til faglegra starfa á skrifstofu
  • auki færni sína til að vinna störf á nútímaskrifstofu
  • auki þjónustufærni sína
  • nái valdi á tölvufærni sem krafist er við almenn skrifstofustörf
  • auki námsfærni sína

Námsgreinar:

  • Verslunarreikningur
  • Námsdagbók og markmiðasetning
  • Þjónusta
  • Gagnvirk samskipti
  • Handfært bókhald
  • Sjálfstraust
  • Tölvubókhald
  • Námstækni
  • Færnimappa og ferilsskrá
  • Tölvu- og upplýsingaleikni 

Námsmat:
Verkefnaskil, 80% mætingarskylda og virk þátttaka.

Kennslufyrirkomulag:
Kennt er tvö síðdegi í viku, þri- og fimmtudaga frá kl 17:00 til kl 20:35 og annan hvern laugardag frá 09:00 - 12:35. 
Ekki eru lögð próf fyrir í náminu en verkefnavinna/skil og virk þátttaka. Kennt er samkvæmt námskrá viðurkenndri af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. 
Dreifinám er kennt með þeim hætti að hluti náms fer fram í gegnum netið, þá eru fyrirlestrar, verkefni og efni frá kennurum aðgengilegt á kennslukerfi MSS. 

Styrkir vegna skólagjalda
Hægt er að sækja um styrki vegna skólagjalda til fræðslusjóða stéttarfélaga. 

Nánari upplýsingar: 
Nánari upplýsingar veita Díana Sól og Hólmfríður síma 421-7500 eða á skrifstofuskoli@mss.is   

Verð á námsleiðum er birt með fyrirvara um breytingar