Hugmyndafræði Samvinnu gengur út á að vinna að heilstæðri úrlausn með hindranir þátttakenda á einstaklingsmiðaðan hátt. Þátttakandi er sjálfur virkur í sinni endurhæfingu frá upphafi þar sem hann kemur með virkum hætti að gerð sinnar endurhæfingaráætlunar.
Endurhæfingin fer að mestum hluta fram í hóp, t.d. með námskeiðum, fræðslu, hópefli og líkamsþjálfun en einnig á einstaklingsmiðaðan hátt þar sem tekið er mið að þörfum hvers og eins til dæmis með viðtölum eða þjálfun hjá fagaðilum, vinnuprufun eða starfsþjálfun.
Samvinna er starfsendurhæfingardeild innan Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Í upphafi starfseminnar var Samvinna sjálfseignastofnun og byrjaði fyrsti hópurinn, sem taldi 20 nemendur í október 2008. Frá ágúst 2014 hefur Samvinna verið rekin sem deild innan MSS og er með þjónustusamning við Virk Starfsendurhæfingarsjóð frá árinu 2013.